Annað hvort er einhver annar á ferðinni hér líka eða að við erum ekki lengur að fara yfir eyðimörkina … Við erum formlega á ráfi um hana!
Copyright Gospel Communications International, Inc –
www.reverendfun.com
Annað hvort er einhver annar á ferðinni hér líka eða að við erum ekki lengur að fara yfir eyðimörkina … Við erum formlega á ráfi um hana!
Copyright Gospel Communications International, Inc –
www.reverendfun.com
Látið mig bara vita hvor var hérna fyrst og ég get þá byrjað pappírsvinnuna.
Copyright Gospel Communications International, Inc –
www.reverendfun.com
Líkar ekki predikunina mína?
Hringið í 1-800-Seg-Guði
Copyright Gospel Communications International, Inc –
www.reverendfun.com
Á þessu ári á Hvítasunnukirkjan Fíladelfía 75 ára afmæli. Okkur á Trúmál.is langar að því tilefni að benda áhugasömum á að dagana 26. maí til 13. júní verður sérstök dagskrá af þessu tilefni og koma eftirfarandi á framfæri:
Við hvetjum fólk til að taka frá helgina 27. til 29. maí og koma og fagna með okkur og njóta alls þess sem í boði er. Sem dæmi má nefna:
Fimmtudagur 26. maí kl. 20.00 Samhjálparsamkoma, farið verður yfir sögu Samhjálpar.
Föstudagur 27. maí kl. 20.00 Unglingadagskrá, litið yfir farinn veg í unglingastarfi safnaðarins.
Laugardagur 28. maí kl. 13.00-17.00 Útihátíð á Klambratúni. Margt spennandi í boði fyrir alla fjölskylduna.
kl. 17.00-18.30 Súpa og brauð í Fíladelfíu
kl. 19.00 Sálmasamkoma með 50′s þema.
Sunnudagur 29. maí kl. 11.00 Hátíðarsamkoma. Kaffi og kaka eftir samkomu.
kl. 20.00 Tónleikar Gospelkórs Fíladelfíu.
Margt fleira verður í boði og um að gera að fylgjast með heimasíðunni þegar nær dregur til að sjá hvað verður í boði.
Við vonumst til að sjá sem flesta og bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin til okkar!
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
Við sögðum frá því á Trúmál.is fyrir skömmu að á Lindinni hefði verið sérstakur Royal rangers dagur. Okkur fannst þetta mjög áhugavert of ákváðum að fá upplýsingar um hvað hér átti sér stað og hvernig þessi dagur hefði nú gengið, hún Jóhanna Eldborg, foringi í Royal rangers Reykjavík sagði okkur eilítið frá því sem gerðist, neðst má svo finna upplýsingar um hvað Royal rangers starfið snýst um:
Við trúum því að þegar við blessum út frá okkur muni Drottinn blessa ríkulega til baka og nú tóku Royal rangers krakkarnir sig saman í því stóra verkefni að blessa Lindina sem segir öðrum börnum frá því að Jesús elskar þau á hverjum degi.
Þau hjóluðu 77 km vegalengd og söfnuðu áheitum.
Miðnesheiði – Hafnir – Grindavík – Reykjanesbraut (lögreglufylgd) – Hafnarfjörður.
Þau hjóluðu á milli tveggja bíla sem keyrðu með blikkandi ljósum, við höfðum kerrur fyrir hjólin þannig að þegar einhver þreyttist þá var hægt að taka hvíld og halda svo áfram. Allan tíman var bein útsending á Lindinni þar sem fylgst var með okkur og tekin viðtöl við krakkana og foringja, fólk var hvatt til að hringja inn áheit á krakkana og styðja við málefnið.
Krakkarnir stóðu sig sem hetjur við fengum stafalogn, rigningu og þegar leið á daginnn fór að slydda og svo snjóa, þá var orðið mjög kalt en þessar hetjur létu það ekki á sig fá fóru í þura vettlinga og kláruðu vegalengdina. Það er gaman að segja frá því að það var 15.ára strákur sem hjólaði alla 77 km. Þegar við söfnuðum saman öllum kílómetrunum sem hjólaðir voru þennan dag, því jú hver einstaklingur gerði sitt allra besta þá hjóluðuð krakkarnir samtals 786,2 km til styrktar Lindinni 30.april 2011.
Sunnudaginn 8.maí afhenti hópurinn fulltrúa Lindarinnar gjafabréf að upphæð 221.226 kr sem safnaðist á Royal rangers deginum á Lindinni.
Allir krakkar á aldrinum 3.bekk og eldri eru velkomin í Royal rangers – það er bara að mæta, starfið er frítt. Heimasíðan okkar er rrr.is
Drottinn blessi ykkur.
Jóhanna Eldborg – foringi í Royal rangers Reykjavík.
Hvað er Royal rangers?
Royal rangers er kristilegt æskulýðsstarf Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi.
Í Royal rangers hittast krakkar frá 3.bekk grunnskóla til og með 10.bekk. Þar lærum við mikið um útivist og alhliða skátastörf ásamt því að fá að vita meira um Jesú. Í Royal rangers er unnið að því andlegur, líkamlegur og vitsmunarlegur þroski barna og unglinga aukist.
Krakkarnir hittast í hverjum miðvikudegi á Royal rangers fundi í Fíladelfíu Kirkjunni kl.18 – 19. Þar lærum við skemtilega hluti td. Lærum við á áttavita, kortalestur, notkun/heiti vasahnífa, uppbyggingu á eldstæði, notkun elds og margt fleirra. Við förum reglulega á Royal rangers mót þar sem við notum alla þá þekkingu sem við höfum og hittum aðra Royal rangers krakka sem koma víðsvegar að frá landinu okkar.
Áhugasamur lesandi benti okkur í dag á meðfylgjandi myndband af laginu You are my all in all í flutningi Gaither Vocal Band. Lagið þekkja flestir og boðskapur textans er afar fallegur og minnir okkur á þann styrk sem Guð er okkur á lífsgöngunni.
Margt hefur gengið á síðastliðið ár og því miður hafa mörg trúfélög á Íslandi þurft að takast á við erfið mál. Sum þessara mála hafa hlotið talsverða fjölmiðlaumfjöllun og hafa mörg verið til mismálefnalegrar umfjöllunar í skrifum bloggara á netinu. Öll hafa þessi mál þó í för með sér afleiðingar, skilja eftir sig fórnarlömb og sársauka og á engan hátt að gera lítið úr.
Selfosskirkja, Hvítasunnukirkjan á Íslandi, Þjóðkirkjan, Krossinn, Ekron eru dæmi um kristileg samfélög sem nýlega hafa þurft að kljást við átakamál þar sem trúnaðarbrestur hefur orðið milli leiðtoga kirkjunnar og kirkjunnar. Málin hafa verið grafalvarleg og fyrir utan að vera lögbrot (með fyrirvara um hvort rétt reynist í þeim tilvikum þar sem sekt hefur ekki verið sönnuð) eru þau alvarleg siðferðisbrot.
Það er alltaf sorglegt þegar einstaklingar víkja frá því sem rétt er og fremja lögbrot og/eða siðferðisbrot. Hegðan leiðtoga veldur ávallt alvarlegum álitshnekkjum og skapar trúnaðarbresti. Fyrir trúfélög skiptir miklu máli að læra af reynslunni og læra af reynslu annarra. Í ritningunni er líka rætt um mikilvægi þess að vanda val á leiðtogum og ríkar kröfur eru gerðar til leiðtoga í kirkjunni. En í Biblíunni kemur líka skýrt fram að öll getum við gert mistök og freistast til að gera rangt. Komi slíkar aðstæður upp, skiptir gríðarlega miklu máli að trúfélög bregðist við að heilindum og í samræmi við lög.
Úrlausn ofangreindra mála hefur ekki verið til fyrirmyndar í öllum tilvikum, þó hafa sum trúfélög sýnt fyrirmyndar viðbrögð. Dæmi um slíkt eru viðbrögð Hvítasunnukirkjunnar þegar upp komst um fjársvik. Framkvæmdastjóra var sagt upp samstundis, söfnuðum í kirkjunni var jafnframt tilkynnt um málið og fjölmiðlar fengu líka upplýsingar um stöðuna. Enginn feluleikur átti sér stað. Málið var síðan sett í farveg hjá hinu opinbera þar sem málinu lauk fyrir dómstólum – allt fyrir opnum tjöldum og lögum samkvæmt. Í framhaldinu af þessu ólánsmáli fór stjórnin í samráði við löggilta endurskoðendur og ráðgjafa yfir alla verkferla sem snúa að bókhaldi og meðferð fjármuna, skipulag innra starfs og verkferla til þess að tryggja eftir fremsta megni að svona tilvik komi ekki fyrir aftur.
Séu einstaklingar haldnir einbeittum brotavilja er oft lítið sem hægt er að gera til að koma algjörlega í veg fyrir að brot verði framin. Það er því þeim mun mikilvægara að söfnuðir velji vel leiðtoga sína og geri slíkt í samræmi við leiðbeiningar ritningarinnar. Komi upp vandamál þarf síðan að bregðast við af ábyrgð og heilindum gagnvart fórnarlömbum, einstaklingnum, söfnuðinum og samfélaginu í heild sinni.
Síðastliðinn föstudag barst eilítið jákvæð frétt, þó að hún væri að megninu til neikvæð. Morgunblaðið sagði frá því að fóstureyðingum hefur fækkað meðal yngstu kvenna á Íslandi, og það verður að viðurkennast að eru jákvæð tíðindi. Þessi frétt fellur þó því miður í skuggann á þeirri sorglegu staðreynd að ár hvert er um einum sjötta af ófæddum börnum á Íslandi eytt. Það er þungur dómur á samfélag okkar að fjöldi þungaðar kvenna finni sig knúna til að fara í fóstureyðingu, en flestar konur á Íslandi fara í fóstureyðingar af félagslegum ástæðum (97% fóstureyðinga árið 2009 voru framkvæmdar vegna félagslegra ástæðna).
Hverjar ætlu séu ástæðurnar og hvernig stendur á því að þetta vandamál sem er svo augljóst í opinberum tölum landlæknisembættisins virðist ekki ná eyrum samfélagsins. Þegar konur treysta sér ekki til að eignast barn, vegna félagslegra aðstæðna sinna (sem tengjast m.a. fjárhag, aldri, sambúðarstöðu og samband við barnsföður), þá þarf að bregðast við og bæta aðstöðu kvenna og kalla samfélag okkar til ábyrgðar – m.a. þá karlmenn sem kunna að reyna að yfirgefa þungaðar konur.
Fréttir um málið má finna hér oghér
[Færslan hér að ofan var uppfærð eftir að góður lesandi (sjá í athugasemdakerfi) benti á að tölfræðin frá Vísi sem stuðst var við, var ranglega reiknuð.]
Ég skráði mig fyrir meira en 2 mánuðum síðan og þú ert eini sem hefur orðið vinur minn
Copyright Gospel Communications International, Inc –
www.reverendfun.com