Því miður búa ekki allir í heiminum við jafn góð kjör og því er mikilvægt fyrir okkur sem höfum þó fyrir lífsnauðsynjunum að styðja og styrkja við þá sem hjálpar þurfa. Í Austur-Afríku ríkir nú hungursneyð og hefur því verið efnt til styrktartónleika í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar þar sem allur ágóði mun renna til styrktar verkefna á vegum Hjálparstarfsins í A-Afríku. Það er því um að gera að mæta á tónleikana og styrkja gott málefni.
Hvar: Fíladelfía, Hátún 2
Hvenær: Sunnudaginn 11. september kl. 20-22.
Verð: Að lágmarki 1.500 kr.
Fram koma:
-Pétur Ben
-Tilviljun?
-Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson
Einn hljómsveitar meðlima Tilviljunar?, Aron Bjarnason, ákvað að leggja sitt af mörkum enn frekar og efna til annarrar söfnunar með því upphaflega markmiði að ef það myndi safnast yfir 100.000 kr myndi hann klippa af sér dreddana sem hann hefur haft í 7 ár. Ekki voru allir hrifnir af því að dreddarnir færu og því var boðið upp á að styrkja málefnið með því markmiði að dreddarnir færu eða héldust. Sú upphæð sem yrði hærri myndi ráða niðurstöðunni.
Nú þegar hafa safnast yfir 100.000 kr og síðustu tölur benda til þess að hárið munu fara. Enn getur þó allt gerst og ekki nóg með það heldur mun hann Elías, eldri bróðir Arons, einnig láta sína dredda fjúka ef heildarupphæð söfnunarinnar og styrktartónleikanna nær milljón kr. Þetta er því frábært tækifæri til að styrkja við gott og mikilvægt málefni.
Hægt er að gefa til Hjálparstarfs kirkjunnar með því að leggja inná:
Reikningsnúmer: 0334-26-886
Kt: 4506700499
(Ef fólk vill í leiðinni styðja við að dreddarnir fari er bent á að setja inn “Hár” í athugasemd en ef það vill að dreddarnir haldist má skrifa “Halda” í athugasemdinni.)
Einnig má lesa smá viðtal við Aron hjá mbl.is.
