Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur og takk fyrir samfylgdina á liðnu ári sem fór heldur mikið upp og niður. Árið 2012 er hinsvegar nú gengið í garð og eru spennandi tímar framundan. Ekki síst í trúmálum, en þau settu vissulega svip sinn á nýliðið ár og má margt nefna úr starfi safnaða, þ.á.m. fagnaði hvítasunnukirkjan á Íslandi í Vestmannaeyjum 90 ára starfsafmæli og hvítasunnukirkjan Fíladelfía í Reykjavík 75 ára afmæli á síðastliðnu ári. Af ýmsu var að taka í almennri þjóðfélagsumræðu um trúmál og áttu sér stað margskonar átök innan mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar um trúmál í borginni. Þá voru ýmis viðkvæm mál innan þjóðkirkjunnar sem vöktu mikla fjölmiðlaathygli höfðu vafalítið áhrif á ákvörðun biskups um að víkja sæti á þessu ári.
Við vonumst að sjálfsögðu til þess að framundan sé ánægjulegt og blessunarríkt ár og óskum þér alls hins besta á árinu 2012
