Biblíulestraráætlanir og smáhópaefni
Við trúum því að það sé nauðsynlegt fyrir alla að hugleiða orða Guðs og gott að temja sér það að lesa í Biblíunni reglulega og nærast af Orðinu. Mörgum langar til þess að lesa Biblíuna í heild sinni og þar sem að Biblían er samansafn rita og ekki auðvelt að lesa hana í einu lagi þá hafa margir útbúið margskonar Biblíulestrar áætlanir sem ætlað er að auðvelda lestur Biblíunnar. Trúmál.is hefur tekið saman nokkrar áætlanir sem eru til á netinu og gerum þær aðgengilegar hérna. Í framtíðinni vonumst við til þess að geta boðið upp á fjölbreyttara úrval áætlanna og að þær verði einnig að finna á íslensku.
Einnig má finna tengla á heimasíður sem bjóða upp á ókeypis smáhópaefni og eitthvað smáhópaefni má finna hér að neðan.
Það er dýrmætt að geta lesið og hugleitt orð Guðs.
Hægri smelltu og veldu “save as” til þess að hlaða niður þá Biblíulestrar áætlun sem þú vilt fá.
Lestur Biblíunnar
Biblían frá upphafi til enda (1 ár) *
Nýja Testamentið, Sálmarnir og Orðskviðirnir (1 ár) *
Lesið úr Nýja Testamentinu og Gamla Testamentinu á hverjum degi (1 ár) *
Biblíusögurnar lesnar (1 ár) *
Þriggja ára lestraráætlun A **
Efni fyrir smáhópa
Hér geturðu niðurhlaðað efni fyrir smáhópa og fundið vefsíður sem að bjóða upp á ókeypis smáhópaefni. Ef að þú veist um efni sem við getum boðið upp á hérna, láttu okkur vita í tölvuspósti á netfangið trumal@trumal.is.
Efni í tengslum við bíómyndina Prince Caspian
Efni í tengslum við bíómyndina Cheaper by the dozens
http://www.smallgroups.com/store/freesamples.html
*Fengið af heimasíðu Heartlight (http://www.heartlight.org) **Fengið héðan
