75 ára afmæli Fíladelfíu

13. maí, 2011

Á þessu ári á Hvítasunnukirkjan Fíladelfía 75 ára afmæli. Okkur á Trúmál.is langar að því tilefni að benda áhugasömum á að dagana 26. maí til 13. júní verður sérstök dagskrá af þessu tilefni og koma eftirfarandi á framfæri:

Við hvetjum fólk til að taka frá helgina 27. til 29. maí og koma og fagna með okkur og njóta alls þess sem í boði er. Sem dæmi má nefna:

Fimmtudagur 26. maí kl. 20.00 Samhjálparsamkoma, farið verður yfir sögu Samhjálpar.

Föstudagur 27. maí kl. 20.00  Unglingadagskrá, litið yfir farinn veg í unglingastarfi safnaðarins.

Laugardagur 28. maí kl. 13.00-17.00 Útihátíð á Klambratúni. Margt spennandi í boði fyrir alla fjölskylduna.

kl. 17.00-18.30 Súpa og brauð í Fíladelfíu

kl. 19.00 Sálmasamkoma með 50′s þema.

Sunnudagur 29. maí   kl. 11.00 Hátíðarsamkoma. Kaffi og kaka eftir samkomu.

kl. 20.00 Tónleikar Gospelkórs Fíladelfíu.

Margt fleira verður í boði og um að gera að fylgjast með heimasíðunni þegar nær dregur til að sjá hvað verður í boði.

Við vonumst til að sjá sem flesta og bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin til okkar!

Hvítasunnukirkjan Fíladelfía


Hjóla 77 km til styktar Lindinni

29. apríl, 2011

Á morgun, laugardaginn 30. apríl, er Royal Rangers dagur á Lindinni. Þá ætla krakkar og foringjar úr Royal Rangers að hjóla 77 km til að styrkja Lindina.

Upplýsingar um þetta frábæra framtak má finna á heimasíðu Royal Rangers www.rrr.is

Við hvetjum þig til að kynna þér málið og leggja krökkunum lið og blessa útvarpsstöðina Lindina sem dag hvern blessar alla þjóðina með því að flytja kristilega tónlist og jákvæðan boðskap um von og kærleika.

Hvert einasta framlag skiptir máli – vertu með!


Lindin á afmæli!!!

11. mars, 2011

Trúmál minnir alla landsmenn á 16 ára afmæli Lindarinnar. Endilega stillið á Lindina (fm 102.9 á höfðuborgarsvæðinu), hlustið á góða tónlist og viðtöl við gesti afmælisvikunnar. Við erum mjög blessuð að hafa þenna fjölmiðil sem sendir jákvæðan boðskap dag sem nótt.

Hægt er að fara inn á lindin.is eða hringja í 567 1818 til að gerast styrktaraðili Lindarinnar eða gefa henni gjöf. Og ekki nóg með það, ef þú gefur gjöf gætir þú líka fengið gjöf. Margir hafa gefið Lindinni „allt mögulegt“ til að gefa þeim sem gefa afmælisgjöf til Lindarinnar. Endilega kíkið á www.lindin.is og smellið á „gjafabréf“ í efra horninu hægra meginn og skoðið hvað er í boði.

Á laugardaginn, 12. mars, verður opið hús á Lindinni milli klukkan þrjú og fimm. Endilega lítið við, njótið afmælisveitinga og fagnið með starfsfólki Lindarinnar og öðrum hlustendum.


Styrktar tónleikar

10. febrúar, 2011

Vekjum athygli á eftirfarandi:


Haustmót í Fíladelfíu – Núna!

16. október, 2009

Vekjum athygli á eftirfarandi haustmóti í Fíladelfíu þessa helgi:

Haustmot09_netid


Krossinn – herkvaðning

15. október, 2009

Vakin er athygli á eftirfarandi

6432_Herkv2009


Kirkjan – fjölnota hús?

14. október, 2009

ForumBendum á áhugavert málþing þar sem leitast verður við að svara hvort að kirkjan sé fjölnota hús. Málþingið verður haldið í Breiðholtskirkju fimmtudaginn 15. október kl. 17:30 og verður fjallað um kirkjuna og notkun hennar í víðu samhengi. Málþingið er haldið á vegum Reykjavíkurprófastsdæmis eystra og er öllum opið. Dagskrá málþingsins er að finna hér að neðan en einnig má finna hana og nánari upplýsingar á slóðinni: http://kirkjan.is/frett/2009/10/9566

Kl. 17:30 Setning sr. Gísli Jónasson prófastur

Kl. 17:40 Sr. Kristján Valur Ingólfsson formaður helgisiðanefndar kirkjunnar:   Helgirými.  Hvað er það? Er það staður þar sem allt er leyfilegt þó ekki sé allt gagnlegt?

Kl. 18:10 Hörður Áskelsson söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar: Tónlist í kirkjunni. Er ein tónlist betri en önnur

Kl. 18: 40 Léttar veitingar

Kl. 19:00 Sigríður Sólveig Friðgeirsdóttir formaður sóknarnefndar Breiðholtssóknar: Kirkja og safnaðarheimili – ábyrgð og samstarf

Kl. 19:10 Eggert Kaaber leikari og leikstjóri: Að setja upp leiksýningu í kirkju

Kl. 19:20 Umræður og fyrirspurnir


Global Leadership Summit

13. október, 2009

skraning180x343Þann 6-7. nóvember n.k. verður hin alþjóðlega leiðtogaráðstefna Global Leadership Summit (GLS) haldin í fyrsta sinn á Íslandi. Um er að ræða eina stærstu samkirkjulegu ráðstefnu sem haldin er í heiminum með yfir 120 þúsund þátttakendum í 57 löndum en þverkirkjulegur samstarfshópur hefur undanfarið ár unnið að undirbúningi ráðstefnunnar hér á landi.

Á vefsíðunni www.gls.is má finna nánari upplýsingar um þessa leiðtogaráðstefnu.

Fyrir hverja er GLS? GLS er fyrir kristna leiðtoga s.s. presta, djákna, æskulýðsleiðtoga, sóknarnefndir og annað starfsfólk kirkna og safnaða. Þessi ráðstefna gagnast einnig leiðtogum- og stjórnendum á öllum sviðum þjóðlífsins eða hafa áhuga á leiðtogafræðum.

Tilgangur GLS er að vera vettvangur þar sem leiðtogar og starfsmenn kirkna og safnaða geta hist árlega til að eiga ánægjulegar og uppbyggilegar stundir. Þar fái þeir bestu fræðslu sem völ er á, innblástur og hvatningu til að ná enn betri árangri og öðlast meiri ánægju í störfum sínum, trúarlífi og einkalífi. Öll trúarleg ágreiningsefni eru lögð til hliðar en þess í stað stuðlað að einingu meðal kristinna manna.


Miðvikudagsfræðsla í Fíladelfíu

24. júní, 2009

filadelfiaminniVakin er athygli á því að Hvítasunnukirkjan Fíladelfía í Reykjavík býður upp á fræðslukvöld á miðvikudagskvöldum kl 20 í sumar. Þykir Trúmál.is frábært að sjá kirkjuna bjóða upp á fræðslu á sumrin jafnt sem á veturna, enda fer Guð sjaldnast í sumarfrí og nauðsynlegt að bjóða hinu kristna samfélagi upp á góða kennslu um Biblíuna og kristna trú allan ársins hring!

Við hvetjum því alla sem áhuga hafa að kíkja í hvítasunnukirkjuna Fíladelfíu í kvöld, í kaffisal kirkjunnar Hátúni 2.


Sumarmót Hvítasunnumanna

18. júní, 2009

Við viljum vekja athygli á auglýsingu um sumarmót Hvítasunnumanna sem finna má hérna, en mótið er haldið á Akureyri dagana 25.-28. júní.

Sumarmót


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.