Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju er að gefa út bók sem kemur út 15. apríl um afar áhugavert efni. Bókinni, sem heitir “Samtal við framandi…” er ætlað að verða innlegg í umræðuna um viðhorf til trúmála á Íslandi. Hún byggir á meistararitgerð höfundarins frá félagsvísindadeildinni í Háskólanum á Bifröst og reynir að kanna hvaða hugmyndir tvítugir
Íslendingar geri sér um fjöltrúarlegar aðstæður, verkefni, vandamál og hugsanlegar lausnir, hvað móti hugmyndirnar, hafi áhrif á þær eða breyti þeim og margt fleira.
Ágrip um bókina má finna hérna og kynningu á bókinni í PDF skjali má finna með því að smella á bókakápuna hér til vinstri.
Trúmál.is hvetur alla sem áhuga hafa til að kynna sér þessa bók, en hægt er að panta hana hjá höfundinum Pétri Björgvini Þorsteinssyni í gegnum netfangið: petur.thorsteinsson(hjá)internet.is
Trúmál.is skrifaði 
Höfundurinn Max Lucado hefur gefið út margar góðar kristilegar bækur. Meðal þeirra er bókaröð sem kallast Grace for the moment, sem gæti útlagst á íslensku “náð fyrir augnablikið”. Þar eru stuttar hugleiðingar og vers fyrir hvern dag ársins sem er gott og hughreystandi að lesa. Hér fylgir íslensk þýðing á hugleiðingunni fyrir daginn í dag: