Frábær DVD diskur fyrir börnin um páskana

8. apríl, 2009

jesumynd_coverNú um páskahátíðina eru mörg börn að læra um hvað páskarnir snúast í fyrsta sinn nú eða rifja það upp sem þau hafa lært áður um páskana. Trúmál.is vill því nota tækifærið og benda á frábæran DVD-disk sem að Lindin gefur út sem heitir Sagan af Jesú fyrir börn. Myndin fer í gegnum líf Jesú og segir þá m.a. frá því sem við minnumst um páskana um fórnardauða Jesú Krists og hvað það þýðir fyrir okkur.

Á heimasíðu Lindarinnar má finna neðangreinda kynningu:

“Sagan af Jesú fyrir börn”

Á disknum er verið að segja söguna af Jesú, séð með augum barna sem gætu hafa verið uppi á þeim dögum sem Jesú lifði á jörðinni. Fylgst er með lífi Benjamíns, Kaleb, Söru, Jóels, Leu og Natans í Jerúsalem í kringum árið 30. Þau heyra sögurnar um manninn frá Nasaret sem læknar sjúka og reisir upp dauða. Þau reyna að skilja þetta allt, sum koma frá fjölskyldum sem trúa því að Jesú sé sonur Guðs, önnur frá fjölskyldum sem trúa því ekki. Þau fylgjast með Jesú úr mannfjöldanum. Þau fylgja honum til að sjá hvað þessi ótrúlegi maður, sem elskar börn, muni gera næst. Þau sjá hann svikinn, borinn röngum sökum,krossfestan og grafin. En þau mundu loforð Jesú og trúðu því að þau mundu fá að sjá hann aftur. Börn á öllum aldri geta notið þess að horfa á þessa grípandi endursögn um sönnu söguna um Jesú frá sjónarhorni barna.

Trúmál.is mælir með disknum hvort sem er fyrir barnastarf eða fyrir heimilin og sérstaklega núna í kringum páskana.

Hafir þú áhuga á disknum eða frekari upplýsingar um myndina, hafðu þá samband við Lindina á netfangið lindin@lindin.is einnig má vafalaust finna þennan DVD disk í mörgum kristilegum bókaverslunum og jafnvel víðar.


Kynning: Sagan af Jesú fyrir börnin

3. september, 2008

Lindin er nýbúin að gefa út nýjan DVD disk

“Sagan af Jesú fyrir börn”

Á disknum er verið að segja söguna af Jesú, séð með augum barna sem gætu hafa verið uppi á þeim dögum sem Jesú lifði á jörðinni. Fylgst er með lífi Benjamíns, Kaleb, Söru, Jóels, Leu og Natans í Jerúsalem í kringum árið 30. Heyrið sögurnar um manninn frá Nasaret sem læknar sjúka og reisir upp dauða. Þau reyna að skilja þetta allt, sum koma frá fjölskyldum sem trúa því að Jesú sé sonur Guðs, önnur frá fjölskyldum sem trúa því ekki. Þau fylgjast með Jesú úr mannfjöldanum. Þau fylgja honum til að sjá hvað þessi ótrúlegi maður, sem elskar börn, muni gera næst. Þau sjá hann svikinn, borinn röngum sökum,krossfestan og grafin. En þau mundu loforð Jesú og trúðu því að þau mundu fá að sjá hann aftur. Börn á öllum aldri geta notið þess að horfa á þessa grípandi endursögn um sönnu söguna um Jesú frá sjónarhorni barna.

Trúmál.is mælir með disknum hvort sem er fyrir barnastarf eða fyrir heimilin.

Hafir þú áhuga á disknum eða frekari upplýsingar um myndina, hafðu þá samband við Lindina á netfangið lindin@lindin.is


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.