Hjóla 77 km til styktar Lindinni

29. apríl, 2011

Á morgun, laugardaginn 30. apríl, er Royal Rangers dagur á Lindinni. Þá ætla krakkar og foringjar úr Royal Rangers að hjóla 77 km til að styrkja Lindina.

Upplýsingar um þetta frábæra framtak má finna á heimasíðu Royal Rangers www.rrr.is

Við hvetjum þig til að kynna þér málið og leggja krökkunum lið og blessa útvarpsstöðina Lindina sem dag hvern blessar alla þjóðina með því að flytja kristilega tónlist og jákvæðan boðskap um von og kærleika.

Hvert einasta framlag skiptir máli – vertu með!


Vorhátíð og sumarbúðaskráning

25. mars, 2011

Á morgun, laugardaginn 26. mars, verður Vorhátíð KFUM og KFUK haldin á Holtavegi 28 í Reykjavík og í Sunnuhlíð á Akureyri.

Hátíðin hefst kl. 12 í Reykjavík og kl. 14 á Akureyri og mun skráning í sumarbúðir félaganna (Hólavatn, Kaldársel, Vatnaskóg, Vindáshlíð og Ölver) og leikjanámskeið hefjast á sama tíma. Einnig er hægt að nýta sér netskráningu á skraning.kfum.is.

Það verður margt skemmtilegt í boði á vorhátíðinni og má þar m.a. nefna

  • Hoppukastala
  • Kaffihús
  • Veltibíl
  • Andlitsmálun
  • Húllahringi
  • Krakkahorn
  • Candy-floss (á vægu verði)

Allir eru velkomnir.


Trúboðar – kristileg mótórhjólasamtök

22. júní, 2009

trubodarNúna þegar sumarið er hafið eru margir sem taka fram mótórhjólin og því er vert að vekja athygli á Trúboðunum sem eru samtök kristinna mótórhjólamanna, en þau eru með vefsíðuna www.trubodar.com og á henni má finna margar upplýsingar um samtökin og það sem þau gera og standa fyrir. Tengilinn má einnig finna hér til hliðar á síðunni undir liðnum “Kristileg félög”.

Trúboðarnir eru duglegir að hittast en á vefsíðu samtakanna kemur m.a. fram að samtökin eru með félagsfundi alla fimmtudaga kl 19:00 í EKRON á Grensásveginum. Þá er hringferð um landið plönuð í lok júní á þessu ári. Ef að þú átt mótórhjól og hefur áhuga á þessum samtökum hvetjum við þig til að kynna þér málið og hafa samband, en á vefsíðu þeirra má m.a. finna netfang og frekari upplýsingar um samtökin.


Bygging kirkju í Chepareria

19. júní, 2009

Merki_S%C3%8DKÁ vefsíðu SÍK er að finna frétt um mjög gott átak sem þar er í gangi, en um er að ræða tímabundna söfnun til styrktar byggingu kirkju í Pókothéraði í Keníu. Við hvetjum að sjálfsögðu þá sem eru aflögufærir að taka þátt í þessu frábæra framtaki þeirra Þóru Harðardóttur og Sr. Ólafs Jóhannssonar. Fréttin er birt í heild sinni hér að neðan:

Í tilefni af fimmtugsafmæli hjónanna Þóru Harðardóttur og sr. Ólafs Jóhannssonar hafa þau hrint af stað tímabundinni söfnun til styrktar byggingu kirkju í Chepareriabænum, Pókothéraði í Keníu. Fyrir nokkrum árum safnaði söfnuðurinn peningum fyrir byggingunni og farið var af stað og grunnur grafinn og byggður. Síðan hefur verkefnið verið í biðstöðu vegna fjárskorts. Chepareriabærinn er í 3-4 km fjarlægð frá kristniboðsstöðinni sem Íslendingar byggðu upp á sínum tíma og mjög fjölmennt á þessu svæði enda er Chepareria mjög miðsvæðis í héraðinu. Söfnuðurinn hefur notast við kennslustofu sem oftar en ekki er of lítil og þá þarf að fara út undir bert loft.

Hjónin Þóra og Ólafur benda ættingjum og vinum sínum sem vilja gleðja þau í tilefni afmæla þeirra að gefa gjöf til styrktar kirkijubyggingunni. Reikningsnúmerið er 0117-15-381029 og kennitala SÍK er 550269-4149. Við munum svo segja frá því hér á síðunni fram eftir sumri hvernig gengur með söfnunina sem nær væntanlega hámarki kringum 1. júlí þegar Ólafur verður fimmtugur.

Þá má einnig geta þess að sóknarnefnd Grensássóknar, þar sem sr. Ólafur er sóknarprestur, hefur samþykkt að Grensássöfnuður taki upp vináttusamband við söfnuðinn í Chepareria. Í því felst m.a. að lykilpersónur á báðum stöðum skrifast á, skipst er á fréttum af starfi safnaðanna og þeir biðja hvor fyrir öðrum í guðsþjónustum og öðru starfi sem fram fer. Sr. Ólafur var í hópi sjö presta sem heimsóttu Pókothérað í haust.


Frábær DVD diskur fyrir börnin um páskana

8. apríl, 2009

jesumynd_coverNú um páskahátíðina eru mörg börn að læra um hvað páskarnir snúast í fyrsta sinn nú eða rifja það upp sem þau hafa lært áður um páskana. Trúmál.is vill því nota tækifærið og benda á frábæran DVD-disk sem að Lindin gefur út sem heitir Sagan af Jesú fyrir börn. Myndin fer í gegnum líf Jesú og segir þá m.a. frá því sem við minnumst um páskana um fórnardauða Jesú Krists og hvað það þýðir fyrir okkur.

Á heimasíðu Lindarinnar má finna neðangreinda kynningu:

“Sagan af Jesú fyrir börn”

Á disknum er verið að segja söguna af Jesú, séð með augum barna sem gætu hafa verið uppi á þeim dögum sem Jesú lifði á jörðinni. Fylgst er með lífi Benjamíns, Kaleb, Söru, Jóels, Leu og Natans í Jerúsalem í kringum árið 30. Þau heyra sögurnar um manninn frá Nasaret sem læknar sjúka og reisir upp dauða. Þau reyna að skilja þetta allt, sum koma frá fjölskyldum sem trúa því að Jesú sé sonur Guðs, önnur frá fjölskyldum sem trúa því ekki. Þau fylgjast með Jesú úr mannfjöldanum. Þau fylgja honum til að sjá hvað þessi ótrúlegi maður, sem elskar börn, muni gera næst. Þau sjá hann svikinn, borinn röngum sökum,krossfestan og grafin. En þau mundu loforð Jesú og trúðu því að þau mundu fá að sjá hann aftur. Börn á öllum aldri geta notið þess að horfa á þessa grípandi endursögn um sönnu söguna um Jesú frá sjónarhorni barna.

Trúmál.is mælir með disknum hvort sem er fyrir barnastarf eða fyrir heimilin og sérstaklega núna í kringum páskana.

Hafir þú áhuga á disknum eða frekari upplýsingar um myndina, hafðu þá samband við Lindina á netfangið lindin@lindin.is einnig má vafalaust finna þennan DVD disk í mörgum kristilegum bókaverslunum og jafnvel víðar.


Skráning í sumarbúðir KFUM & K á fullu!

1. apríl, 2009

Síðastliðinn laugardag hófst skráning í sumarbúðir KFUM og K. Sumarbúðirnar sem um ræðir eru Vatnaskógur, Vindáshlíð, Ölver, Kaldársel og Hólavatn, einnig stendur yfir skráning á leikjanámskeið KFUM og K. Fyrsta skráningardaginn var slegið met þegar 1100 börn voru skráð þennan fyrsta dag og fylltist strax í nokkra flokka. Nú hefur fyllst í fleiri flokka og fer hver að verða síðastur að skrá sig en nýjustu tölur í dag sýna að yfir 1400 börn eru skráð í sumarbúðirnar. Trúmál.is hvetur að sjálfsögðu alla til þess að kynna sér málið hjá KFUM og K og mælum við eindregið með sumarbúðunum! Nánari upplýsingar um skráninguna og sumarbúðirnar má fá á heimasíðu KFUM&K www.kfum.is


Lokadagur afmælisviku Lindarinnar á morgun!

13. mars, 2009

Nú líður að lokum afmælisvikunnar hjá Lindinni og margt að þakka fyrir. Fyrir þá sem fylgjast með því sem safnast hefur, þá koma hér nýjustu tölurnar. Í gær var komu inn kr. 970.200 í bein framlög og kr. 282.000 í mánaðarlegan stuðning (eða kr. 23.500 á mánuði) og í kvöld klukkan átta var heildarstaðan föstudagsins komin í kr. 619.500 í beint framlag og kr. 174.000 í mánlegan stuðning (eða kr. 14.500 á mánuði ).

Það verður spennandi að sjá hvað safnast á morgun, en þá er formlegur lokadagur söfnunarinnar (þó svo allan ársins hring sé tekið við bæði gjöfum og mánaðarlegum styrkjum). Svo endilega hringið í síma 567 1818 ef þið viljið vera með eða kíkið á opið hús Lindarinnar á morgun á Krókhálsi 4, skoðið aðstöðuna og heilsið upp á þá sem starfa þarna.

Við viljum líka minna á að enn eru ýmsar gjafir í boði sem Lindinni hefur verið gefið til að blessa glaða gjafara með. Má þar nefna alls kyns ferðir (á mótorhjólum, rútu og jeppum), skartgripagerð, sjöl, bækur, geisladiska, mat og margt margt fleira. Við bendum þó á að sumt er til í takmörkuðu magni og aldrei að vita hvenær það er uppurið, en endilega spyrjið þegar þið hringið í síma 567 1818, til að gefa ykkar framlag til kristilegs útvarps á Íslandi.


Söfnunartarkmark Lindarinnar

12. mars, 2009

Enn og aftur minnir trumal.is á afmælisviku Lindarinnar og söfnunartakmarkið – fjórar milljónir í beinar gjafir og kr. 400.000 aukning á framlögum per mánuð. Það má kannski segja að þetta séu í raun tæpar níu milljónir sem Lindina vantar núna og næsta árið. Stórir póstar í rekstrinum eru t.d. Stef gjöld og útvarpsleyfið. Varðandi daglegan rekstur þá má nefna að einn klukkutími í útsendingu kostar í dag rúmar kr. 4.000. Það gæti verið skemmtilegt takmark fyrir fjölskyldu, vini eða jafnvel einstaklinga að styrkja Lindina mánaðarlega um sem samsvarar klukkustund í útsendingu.

Í gær, miðvikudag, komu inn kr. 777.000 í gjafir og í mánaðarlegan stuðning kr. 242.400 (kr. 20.200 per mánuð). Samtals gera þetta kr. 1.019.400 í heildina. Í dag (fimmtudag) eftir hádegi var svo heildartalan komin rétt yfir kr. 700.000, svo það verður spennandi að sjá lokatölur dagsins.

Við minnum líka á að enn er heilmikið eftir af góðum gjöfum sem Lindinni hefur áskotnast til að gefa áfram til glaðra gjafara. Meðal þess sem er komið nýtt er: kakó og vöfflur í Glætunni, útsýnisflug yfir Stykkishólm,jeppaferð inn í Hrafntinnusker, hamborgarar frá Hamborgarabúllu Tómasar, bækur frá Salt útgáfunni, barnapössun í Ævintýralandi í Kringlunni og fleira og fleira. Það skal samt tekið fram að þessi listi er alltaf að breytast svo það er ekki víst að allt sé enn til þegar þið hringir, en það er um að gera að spyrja.

Svo endilega hringið í síma 567 1818 og blessið Lindina og leyfið Lindinniað blessa ykkur.


Nýjustu söfnunartölur Lindarinnar

10. mars, 2009

Nýjustu söfnunartölur voru að berast, safnast hafa rúmar 484 þús í beinum framlögum og og mánaðarlegur stuðningur hefur aukist um 43.600 á mán. Við bendum sérstaklega á síðuna http://www.lindin.is/Templates/studningur.htm fyrir þá sem hafa áhuga á að styðja við starfið en, ennþá er langt í land að markmið ársins náist.

 

Margt áhugavert er í boði í tengslum við Gjöf á gjöf átak Lindarinnar og langar okkur að benda á nokkra hluti sem í boði eru (ath. eitthvað af þessu kann að vera búið):

 

Hafliði Kristinsson fjölskyldu-og hjónaráðgjafi ætlar að gefa Lindinni í afmælisgjöf 4x skipti í hjóna-og fjölskylduráðgjöf.

Tíminn hjá Hafliða kostar 6.000 krónur en ef þú vilt fá öll 4 skiptin gefur þú 24.000- til Lindarinnar.

 

Rútuferð….í stuði með Guði…rosa fjör!!!

Ævintýri ehf. ætlar að gefa Lindinni í afmælisgjöf rútuferð. Farinn verður hinn svokallaði gullhringur.  Ferðin tekur 6-7 klst.
Ekið verður á Þingvelli, Geysi og Gullfoss þar sem við borðum saman góðan mat.

Í boði eru 50 sæti og kostar sætið 5.000- með mat. Farið verður 30. maí.

 

Mótorhjólaferð, óvissuferð,Trúboðar:

Viltu finna vorvindinn gæla við kinnarnar á þér? Finna lyktina af nývöxnum gróðri?

Félagar í mótorhjólaklúbbnum Trúboðarnir gefa Lindinni afmælisgjöf. 
Þeir bjóða í 4 klst. óvissuferð í kringum 19. maí, veljum dag með flottu veðri.

Hittst verður hjá Ekron sem er á horni Fellsmúla og Grensásvegar kl. 19:00 og komið aftur heim kl. 23:00.
Gegn 5.000- króna gjöf til Lindarinnar færðu sæti í þessa frábæru ferð, hressing er innifalin í sætisverði svo þú þarft ekki að taka með þér nesti.

 

Svölukot í Vestmannaeyjum, sem Anna Svala Johnson rekur ásamt Gaua á Látrum, hefur gefið Lindinni afmælisgjöf að verðmæti 20.000 krónur.
Markmið Svölukots er að skapa góða vinnuaðstöðu til útleigu fyrir listamenn úr öllum kimum listaflórunnar og skapa þannig umhverfi fyrir list án landamæra. Boðið er upp á afnot af ýmis konar verkfærum sem eigendurnir hafa safnað í gegnum tíðana.
Auk þess er sameiginleg aðstaða í boði eins og kaffiaðstaða og salur fyrir ýmsa viðburði. Hægt er að leigja aðstöðu og/eða verkfæri Svölukots í Vestmannaeyjum gegn 10.000- króna gjöf til Lindarinnar!!

 

Út að borða – kósíkvöld!!!

Veitingastaðurinn Indian Mangó hefur gefið Lindinni afmælisgjöf. Gjafabréf á nokkrar máltíðir á Indian Mango á Frakkastíg 12
Máltíð fyrir einn  að andvirði 3.500 kr. gegn 3000. kr. gjafar til Lindarinnar

 

Ertu að ferðast austur eða suður? Yndislegt að stoppa og hvíla sig? Gistiheimilið Hvammur, Höfn í Hornarfirði gefur Lindini afmælisgjöf

Ef þú gefur Lindinni 12.000- króna afmælisgjöf geturðu fengið gjafabréf með gistingu fyrir tvo ásamt morgunverði á þessum fallega stað.

 

Litla búðin á Akranesi gefur 10 gjafabréf í afmælisgjöf til Lindarinnar að verðmæti 15.000 hvert. Sá sem gefur 10.000- króna afmælisgjöf til Lindarinnar getur eignast gjafabréf með inneign að upphæð15.000krónur í Litlu búðinni á Akranesi.

 

Matarboð á Skaganum!!!

Ellen og Biggi á Akranesi bjóða til veislu, laugardaginn 28 mars kl 18:00. Ef þú vilt koma og njóta með okkur góðs matarborðs gefurðu Lindinni 3.000-krónur og þá færðu afhentan matarmiða sem gefur þér aðgang í þessa veislu.

 

Sjóstangveiði á Faxaflóa með Gunnari í Krossinum í vor, gegn 20.000 kr. Gjöf til Lindarinnar getur þú farið í sjóstangveiði í heilan dag innifalið beita og veiðarfæri aðeins 4  gjafabréf í boði

 

Ert þú að fara að halda veislu  ? Vantar þig Píanóleikara ? Gegn 10 þúsund króna gjöf til Lindarinnar getur þú fengið Píanóleik í allt að 3 tíma (Þetta tilboð er bundið við höfuðborgarsvæðið) Alls kyns dinnertónlist í boði, mjög reyndur  píanóleikari.

 

ATLANTIS GISTIHÚS  GRENSÁSVEGI 14 Gisting í eina nótt  eða í  2 nætur ef gist fyrir  01.05.2009 Gegn 15 þúsund kr. Gjöf til Lindarinnar

 

VEITINGASTAÐURINN  AMMA DÍSA  BÍLDSHÖFÐA 12

Máltíð fyrir einn  gegn 1100 kr. Gjöf til Lindarinnar


Nýjustu fréttir frá Lindinni í afmælisvikunni

10. mars, 2009

logo-lindin_smallÞað er mikið líf og fjör á Lindinni þessa dagana, eins og venjulega í afmælisvikunni. Gestir streyma inn í viðtöl við þáttastjórnendur og síminn hringir reglulega með framlög og gjafir frá einstaklingum og fyrirtækjum. Svo eru það gjafirnar sem Lindinni hafa verið gefnar til að gefa áfram og blessa þannig þá sem hringja inn. Verið ófeiminn við að spyrja hvort þetta eða hitt sé enn á boðstólnum þegar þig hringið til að gefa Lindinni afmælisgjöf eða mánaðarlegt framlag. Munum að það er mikil blessun fyrir þá sem gefa þessar gjafir að vita að þeir hafa blessað bæði Lindina og aðra sem sínum gjöfum.

Við minnum aftur á takmarkið – fjórar milljónir í beinar gjafir og kr. 400.000 aukning á mánaðarlegum framlögum. Í gær komu alls inn um kr. 600.000 í samanlögðum gjöfum og framlögum og í eftirmiðdag höfðu bæst við milli tvö og þrjúhundruðþúsund krónur! Þannig að allt í allt eru komnar inn milli 8 og 900.000 krónur.

Akureyrarsendirinn sem bilaði í gærmorgunn er nú í viðgerð og verður vonandi kominn i gagnið í kvöld eða fyrramálið, en þangað til verða Akureyringar að notast við tölvur og ADSL.


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.