JesúKonur á Valentínusardag

13. febrúar, 2009

jesukonurÁ morgun, 14. febrúar, munu JesúKonur og JesúStelpur hittast í kaffisal Hvítasunnukirkjunnar Fíladlefíu. Þar sem að þar er jafnframt Valentínusardagur verður gert eitthvað sérstakt í tilefni þess. Allar konur eru hvattar til þess að fjölmenna á samkomu sem byrjar kl 10 á morgunverði og kósýheitum, síðan er lofgjörð, fræðsla og líklega einhverjir vitnisburðir.

Barnapössun er í boði fyrir þær sem það þurfa og eru samkomurnar opnar fyrir allar konur og er jafnframt hvatt til þess að taka vinkonur með sér.


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.