Vorhátíð og sumarbúðaskráning

25. mars, 2011

Á morgun, laugardaginn 26. mars, verður Vorhátíð KFUM og KFUK haldin á Holtavegi 28 í Reykjavík og í Sunnuhlíð á Akureyri.

Hátíðin hefst kl. 12 í Reykjavík og kl. 14 á Akureyri og mun skráning í sumarbúðir félaganna (Hólavatn, Kaldársel, Vatnaskóg, Vindáshlíð og Ölver) og leikjanámskeið hefjast á sama tíma. Einnig er hægt að nýta sér netskráningu á skraning.kfum.is.

Það verður margt skemmtilegt í boði á vorhátíðinni og má þar m.a. nefna

  • Hoppukastala
  • Kaffihús
  • Veltibíl
  • Andlitsmálun
  • Húllahringi
  • Krakkahorn
  • Candy-floss (á vægu verði)

Allir eru velkomnir.


Skráning í sumarbúðir KFUM & K á fullu!

1. apríl, 2009

Síðastliðinn laugardag hófst skráning í sumarbúðir KFUM og K. Sumarbúðirnar sem um ræðir eru Vatnaskógur, Vindáshlíð, Ölver, Kaldársel og Hólavatn, einnig stendur yfir skráning á leikjanámskeið KFUM og K. Fyrsta skráningardaginn var slegið met þegar 1100 börn voru skráð þennan fyrsta dag og fylltist strax í nokkra flokka. Nú hefur fyllst í fleiri flokka og fer hver að verða síðastur að skrá sig en nýjustu tölur í dag sýna að yfir 1400 börn eru skráð í sumarbúðirnar. Trúmál.is hvetur að sjálfsögðu alla til þess að kynna sér málið hjá KFUM og K og mælum við eindregið með sumarbúðunum! Nánari upplýsingar um skráninguna og sumarbúðirnar má fá á heimasíðu KFUM&K www.kfum.is


Miðasala á !Hero í fullum gangi á midi.is

19. febrúar, 2009

Kynnið ykkur málið á www.midi.is eða www.hero.is

hero


Styttist í miðasölu !HERO

8. febrúar, 2009

Ákveðið hefur verið að sýningar á söngleiknum !HERO verði í Loftkastalanum dagana 6., 8., 14. og 15. mars skv. því sem fram kemur á heimasíðu KFUM & KFUK. Æfingar eru nú í fullum gangi en söngleikurinn er settur upp  af ungu fólki í KFUM og KFUK ásamt meðlimum fleiri kristinna samfélaga á Íslandi. Read the rest of this entry »


Ljósmyndadeild KFUM & KFUK

5. febrúar, 2009

kfumogklogoEitt af öflugustu æskulýðsfélögum landsins býður nú upp á nýjung í ungmennastarfi sínu. KFUM & K hefur frá því í haustbyrjun starfrækt ljósmyndadeild fyrir 16-30 ára. Deildin sem er opin öllum áhugasömum skv. heimasíðu félaganna, er með vikulega fundi á miðvikudögum kl 20-22 á Holtavegi 28. Starf deildarinnar felst í þessum vikulegu samverustundum þar sem fram fer kennsla og umræður um myndavélar, ljósmyndun og ljósmyndir og allt annað sem viðkemur þessu sviði. Leiðbeinandi er Haraldur Guðjónsson. Trúmál.is hvetur áhugasama til þess að kynna sér málið frekar á vefsíðu KFUM og K eða með því að hafa samband við skrifstofu félaganna.


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.