Á vefsíðu SÍK er að finna frétt um mjög gott átak sem þar er í gangi, en um er að ræða tímabundna söfnun til styrktar byggingu kirkju í Pókothéraði í Keníu. Við hvetjum að sjálfsögðu þá sem eru aflögufærir að taka þátt í þessu frábæra framtaki þeirra Þóru Harðardóttur og Sr. Ólafs Jóhannssonar. Fréttin er birt í heild sinni hér að neðan:
Í tilefni af fimmtugsafmæli hjónanna Þóru Harðardóttur og sr. Ólafs Jóhannssonar hafa þau hrint af stað tímabundinni söfnun til styrktar byggingu kirkju í Chepareriabænum, Pókothéraði í Keníu. Fyrir nokkrum árum safnaði söfnuðurinn peningum fyrir byggingunni og farið var af stað og grunnur grafinn og byggður. Síðan hefur verkefnið verið í biðstöðu vegna fjárskorts. Chepareriabærinn er í 3-4 km fjarlægð frá kristniboðsstöðinni sem Íslendingar byggðu upp á sínum tíma og mjög fjölmennt á þessu svæði enda er Chepareria mjög miðsvæðis í héraðinu. Söfnuðurinn hefur notast við kennslustofu sem oftar en ekki er of lítil og þá þarf að fara út undir bert loft.
Hjónin Þóra og Ólafur benda ættingjum og vinum sínum sem vilja gleðja þau í tilefni afmæla þeirra að gefa gjöf til styrktar kirkijubyggingunni. Reikningsnúmerið er 0117-15-381029 og kennitala SÍK er 550269-4149. Við munum svo segja frá því hér á síðunni fram eftir sumri hvernig gengur með söfnunina sem nær væntanlega hámarki kringum 1. júlí þegar Ólafur verður fimmtugur.
Þá má einnig geta þess að sóknarnefnd Grensássóknar, þar sem sr. Ólafur er sóknarprestur, hefur samþykkt að Grensássöfnuður taki upp vináttusamband við söfnuðinn í Chepareria. Í því felst m.a. að lykilpersónur á báðum stöðum skrifast á, skipst er á fréttum af starfi safnaðanna og þeir biðja hvor fyrir öðrum í guðsþjónustum og öðru starfi sem fram fer. Sr. Ólafur var í hópi sjö presta sem heimsóttu Pókothérað í haust.
Trúmál.is skrifaði 
