Glætan á tveimur hæðum!

15. júní, 2009

Glaetan logoTrúmál.is barst eftirfarandi frétt frá Glætunni og hvetur áhugasama til að kíkja við í vikunni og í sumar:

Loksins !

Við erum búin að opna upp á 2.hæðina í Glætunni á Laugavegi 19.  Við erum al-sæl og viljum endilega að sem flestir komi og kíki á flottheitin, t.d. á 17.júní. 

Ef þú átt stóls, hillur eða sófa sem þú heldur að við gætum notað, láttu okkur þá vita því að við viljum endilega bæta við húsgögnum á nýju hæðina okkar.

Svo er Borgin búin að send flokk af duglegum mönnum sem voru alla síðustu viku að vinna bakvið húsið hjá okkur og þar er nú komið þetta flotta torg með hjarta í miðjunni! 

Við hlökkum til að sjá þig á Glætunni, 

Starfsfólk Glætunnar.


Bók vikunnar hjá Glætunni

9. febrúar, 2009

ljos_a_dimmum_degiBókakaffið Glætan hefur reglulega kynnt bók vikunnar á útvarpsstöðinni Lindinni og okkur er það heiður hér á Trúmál.is að taka þátt í því að kynna góðar og uppbyggilegar kristilegar bækur sem eru til sölu í bókakaffinu. Hér að neðan má sjá stutta en mjög áhugaverða kynningu á bók vikunnar sem að þessu sinni heitir Ljós á dimmum degi og er eftir franska prestinn Paul Geres. Það þarf vart að taka það, fyrir þá sem áhuga hafa að bókin fæst á góðum kjörum í Glætunni.

Bókin var gefin út í íslenskri þýðingu Hreins S. Hákonarsonar árið 2006 og var það Skálholtsútgáfan sem gaf bókina út. 

Í formálanum segir m.a. “ Öll þekkjum við daga sem eru dimmir og óbærilegir.  Daga þegar þjáning virðist draga úr okkur allan þrótt.  Hún ein ríkir í huga okkar og vill hvergi hopa.  Okkur finnst jafnvel að líðandi stund hafi samsamast þjáningunni.

Á slíkum dögum getur verið erfitt að hitta vini sína, Read the rest of this entry »


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.