Síðbúin nýársmarkmið? – youversion.com

1. febrúar, 2011

Á nýju ári er oft gaman að setja sér ný og spennandi markmið og þrátt fyrir að við gerum það yfirleitt með áramótaheitunum er aldrei of seint að bæta nýju markmiði við. Eitt markmið gæti verið að lesa Biblíuna, að hluta, eða í heild, á einu ári.

Biblíulestrar áætlanir geta gagnast vel til að gera lestur í Biblíunni að hluta af okkar daglega lífi og þær nýtast einnig vel ef maður vill lesa Biblíuna markvisst. Á heimasíðu YouVersion er hægt að fá aðgang að yfir 50 mismunandi Biblíulestraráætlunum og ættu því flestir að geta fundið áætlun sem hentar þeim. T.d. er þar að finna 3 vikna áætlun sem fer í gegnum hina ýmsu texta Biblíunnar tengda bæninni og þó nokkur mismunandi áætlanir sem fara í gegnum alla Biblíuna á einu ári.

YouVersion býður einnig upp á að maður geti merkt við á síðunni þegar maður hefur lokið við lestur dagsins og ef maður missir úr einhverja daga er auðveldlega hægt að aðlaga planið þannig að maður er aftur á réttu róli.

Biblíulestur er mikilvægur við ræktun trúarinnar og því um að gera að lesa reglulega í Biblíunni. Það er aldrei of seint að byrja!

Add to FaceBookAdd to Twitter

Like This!


Soldiers of the World

27. janúar, 2011

Góðar ábendingar eru ávallt vel þegnar og ein þeirra barst okkur í gær þegar bent var á hæfileikaríka söngkonu og höfund að laginu Soldiers of the World. Á youtube má finna lagið í flutningi U.N.G. (Undir náð Guðs) og Guðbjargar Elísu Hafsteinsdóttur sem samdi lagið og syngur það hér fyrir neðan. Lagið og flutningurinn er mjög góður og hlakkar okkur til að sjá meira með þessu hæfileikaríka fólki í framtíðinni.

 

Add to FaceBookAdd to Twitter

Like This!


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.