Soldiers of the World

27. janúar, 2011

Góðar ábendingar eru ávallt vel þegnar og ein þeirra barst okkur í gær þegar bent var á hæfileikaríka söngkonu og höfund að laginu Soldiers of the World. Á youtube má finna lagið í flutningi U.N.G. (Undir náð Guðs) og Guðbjargar Elísu Hafsteinsdóttur sem samdi lagið og syngur það hér fyrir neðan. Lagið og flutningurinn er mjög góður og hlakkar okkur til að sjá meira með þessu hæfileikaríka fólki í framtíðinni.

 

Add to FaceBookAdd to Twitter

Like This!


Er þetta “modern” kirkjan í hnotskurn?

28. ágúst, 2010


Ný fréttastöð!

2. október, 2009

Eitt af öflugri æskulýðsfélögum landsins, Meme group, hefur gert afskaplega skemmtileg myndbönd af því sem er að gerast í kristilegu unglingastarfi í Reykjavík. Það er frábært að sjá hvað myndböndin, sem gefa RÚV fréttastofunni ekkert eftir, eru fagmanleg og vel unnin. Leiðtogar starfsins og unglingarnir í starfinu eiga hrós skilið fyrir frábært starf og frábæran fréttaflutning og það verður gaman að fylgjast með Meme group og starfinu í Digraneskirkju í framtíðinni. Fyrir áhugasama er vefsíða æskulýðsfélagsins www.jarma.net

Við tengjum ykkur við fréttastofu Meme, yfir og út!


Maðurinn í holunni – dæmisaga

4. ágúst, 2009


Páskadagur 2009 – Jesús er upprisinn!

12. apríl, 2009

GLEÐILEGA PÁSKA

Í dag er Páskadagur, þá minnast kristnir um allan heim upprisu Jesú krists og sigur hans yfir dauðanum. Í tilefni dagsins látum við fylgja ritningarstaði eins og við höfum gert síðastliðna daga sem og tvö myndbönd. Annað þeirra er úr kvikmyndinni Jesus of Nazareth og hitt myndbandið er örstutt vídeó með hugleiðingu í stikkorðum.

 

 

Ritningarstaður dagsins kemur úr Markúsarguðspjalli 16 kafla 1-19 vers

1Þá er hvíldardagurinn var liðinn keyptu þær María Magdalena, María móðir Jakobs og Salóme ilmsmyrsl til að fara og smyrja hann. 2Og mjög árla hinn fyrsta dag vikunnar, um sólarupprás, koma þær að gröfinni. 3Þær sögðu sín á milli: „Hver mun velta fyrir okkur steininum frá grafarmunnanum?“ 4En þegar þær líta upp sjá þær að steininum hafði verið velt frá en hann var mjög stór. 5Þær stíga inn í gröfina og sjá ungan mann sitja hægra megin, klæddan hvítri skikkju, og þær skelfdust.
6En hann sagði við þær: „Skelfist eigi. Þér leitið að Jesú frá Nasaret, hinum krossfesta. Hann er upp risinn, hann er ekki hér. Sjáið þarna staðinn þar sem þeir lögðu hann. 7En farið og segið lærisveinum hans og Pétri: Hann fer á undan yður til Galíleu. Þar munuð þér sjá hann eins og hann sagði yður.“
8Þær fóru út og flýðu frá gröfinni því ótti og ofboð var yfir þær komið. Þær sögðu engum frá neinu því þær voru hræddar.
9Þegar Jesús var upp risinn árla hinn fyrsta dag vikunnar birtist hann fyrst Maríu Magdalenu en út af henni hafði hann rekið sjö illa anda. 10Hún fór og kunngjörði þetta þeim er með honum höfðu verið og hörmuðu nú og grétu.
11Þá er þeir heyrðu að Jesús væri lifandi og hún hefði séð hann trúðu þeir ekki.
12Eftir þetta birtist Jesús í annarri mynd tveimur þeirra þar sem þeir voru á göngu á leið út í sveit. 13Þeir sneru við og kunngjörðu hinum en þeir trúðu þeim ekki heldur.
14Seinna birtist Jesús þeim ellefu þegar þeir sátu til borðs og ávítaði þá fyrir vantrú þeirra og þverúð hjartans, að þeir hefðu ekki trúað þeim er sáu hann upp risinn. 15Jesús sagði við þá: „Farið út um allan heim og prédikið fagnaðarerindið öllu mannkyni. 16Sá sem trúir og skírist mun hólpinn verða en sá sem trúir ekki mun dæmdur verða. 17En þessi tákn munu fylgja þeim er trúa: Í mínu nafni munu þeir reka út illa anda, tala nýjum tungum, 18taka upp höggorma og þó að þeir drekki eitthvað banvænt mun þeim ekki verða meint af. Yfir sjúka munu þeir leggja hendur og þeir verða heilir.“
19Þegar nú Drottinn Jesús hafði talað við þá var hann upp numinn til himins og settist til hægri handar Guði. 20Þeir fóru og prédikuðu hvarvetna og Drottinn var í verki með þeim og staðfesti boðun þeirra með táknum sem henni fylgdu.] 

Njóttu dagsins og mundu að Jesús elskar þig!


Föstudagurinn langi 2009

10. apríl, 2009

Við höldum áfram að minnast þeirra atburða sem sem leggja grunninn að kristinni trú og er minnst um allan heim þessa dagana. Í dag er Föstudagurinn langi þegar við minnumst fórnardauða Jesú Krists á krossinum. Myndbandið sem við sýnum í dag er brot úr kvikmyndinni Passion of the Christ sem Mel Gibson framleiddi fyrir nokkrum árum, sem sýnir krossfestinguna og undir má heyra lagið “Miracle Maker” með hljómsveitinni Delirious. Athugið að myndbandið er ekki við hæfi viðkvæmra. Myndbandið má einnig nálgast beint á slóðinni http://www.youtube.com/watch?v=pRNspyB9V0k

Ritningarstaður dagsins er 15 kafli Markúsarguðspjalls eins og hann leggur sig, þ.e. frá versi 1-47

1Þegar að morgni gerðu æðstu prestarnir samþykkt með öldungunum, fræðimönnunum og öllu ráðinu. Þeir létu binda Jesú og færa brott og framseldu hann Pílatusi. 2Pílatus spurði hann: „Ert þú konungur Gyðinga?“
Jesús svaraði: „Það eru þín orð.“
3En æðstu prestarnir báru á hann margar sakir. 4Pílatus spurði hann aftur: „Svarar þú engu? Þú heyrir hve þungar sakir þeir bera á þig.“
5En Jesús svaraði engu framar og undraðist Pílatus það.
6En á hátíðinni var Pílatus vanur að gefa þeim lausan einn bandingja, þann er þeir báðu um. 7Maður að nafni Barabbas var þá í böndum ásamt upphlaupsmönnum. Höfðu þeir framið manndráp í upphlaupinu. 8Nú kom mannfjöldinn og tók að biðja að Pílatus veitti þeim hið sama og hann væri vanur. 9Pílatus svaraði þeim: „Viljið þið að ég gefi ykkur lausan konung Gyðinga?“ 10Hann vissi að æðstu prestarnir höfðu fyrir öfundar sakir framselt hann. 11En æðstu prestarnir æstu múginn til að heimta að hann gæfi þeim heldur Barabbas lausan. 12Pílatus tók enn til máls og sagði við þá: „Hvað á ég þá að gera við þann sem þið kallið konung Gyðinga?“
13En þeir æptu á móti: „Krossfestu hann!“
14Pílatus spurði: „Hvað illt hefur hann þá gert?“
En þeir æptu því meir: „Krossfestu hann!“
15En með því að Pílatus vildi gera fólkinu til hæfis gaf hann því Barabbas lausan. Hann lét húðstrýkja Jesú og framseldi hann til krossfestingar.
16Hermennirnir fóru með Jesú inn í höllina, aðsetur landshöfðingjans, og kölluðu saman alla hersveitina. 17Þeir færa hann í purpuraskikkju, flétta þyrnikórónu og setja á höfuð honum. 18Þá tóku þeir að heilsa honum: „Heill þér, konungur Gyðinga!“ 19Og þeir slógu höfuð hans með reyrsprota og hræktu á hann, féllu á kné og hylltu hann. 20Þegar þeir höfðu spottað hann færðu þeir hann úr purpuraskikkjunni og í hans eigin klæði. Þá leiddu þeir Jesú út til að krossfesta hann.
21En maður nokkur átti leið þar hjá og var að koma utan úr sveit. Hann neyða þeir til að bera kross Jesú. Það var Símon frá Kýrene, faðir þeirra Alexanders og Rúfusar.
22Þeir fara með Jesú til þess staðar er heitir Golgata, það þýðir hauskúpustaður. 23Þeir báru honum vín, blandað myrru, en hann þáði ekki.
24Þá krossfestu þeir hann. Og þeir skiptu með sér klæðum hans og köstuðu hlutum um hvað hver skyldi fá. 25En það var um dagmál er þeir krossfestu hann. 26Og yfirskriftin um sakargift hans var svo skráð: KONUNGUR GYÐINGA.
27Með honum krossfestu þeir tvo ræningja, annan til hægri handar honum en hinn til vinstri. [ 28Þá rættist sú ritning er segir: Með illvirkjum var hann talinn.] 
29Þeir sem fram hjá gengu hæddu hann, skóku höfuð sín og sögðu: „Svei, þú sem brýtur niður musterið og reisir það á þrem dögum! 30Bjarga nú sjálfum þér og stíg niður af krossinum.“
31Eins gerðu æðstu prestarnir gys að honum og fræðimennirnir og sögðu hver við annan: „Öðrum bjargaði hann, sjálfum sér getur hann ekki bjargað. 32Stígi nú Kristur, konungur Ísraels, niður af krossinum svo að við getum séð og trúað.“
Einnig smánuðu hann þeir sem með honum voru krossfestir. 
33Á hádegi varð myrkur um allt land til nóns.  34Og á nóni kallaði Jesús hárri röddu: „Elóí, Elóí, lama sabaktaní!“ Það þýðir: Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig?
35Nokkrir þeirra er hjá stóðu heyrðu þetta og sögðu: „Heyrið, hann kallar á Elía!“ 36Hljóp þá einn til, fyllti njarðarvött ediki, stakk á reyrstaf og gaf honum að drekka. Hann mælti: „Látum sjá hvort Elía kemur að taka hann ofan.“
37En Jesús kallaði hárri röddu og gaf upp andann.
38Og fortjald musterisins rifnaði í tvennt, ofan frá og allt niður úr.
39Þegar hundraðshöfðinginn, sem stóð gegnt honum, sá hann gefa upp andann á þennan hátt sagði hann: „Sannarlega var þessi maður sonur Guðs.“
40Þar voru og konur álengdar og horfðu á, meðal þeirra María Magdalena, María, móðir þeirra Jakobs yngra og Jóse, og Salóme. 41Þær höfðu fylgt honum og þjónað er hann var í Galíleu. Þar voru margar aðrar konur sem höfðu farið með honum upp til Jerúsalem. 
42Nú var komið kvöld. Þá var aðfangadagur, það er dagurinn fyrir hvíldardag. 43Þá kom Jósef frá Arímaþeu, göfugur ráðsherra, er sjálfur vænti Guðs ríkis. Hann áræddi að fara inn til Pílatusar og biðja um líkama Jesú. 44Pílatus furðaði á að hann skyldi þegar vera andaður. Hann kallaði til sín hundraðshöfðingjann og spurði hvort hann væri þegar látinn. 45Og er hann varð þess vís hjá hundraðshöfðingjanum gaf hann Jósef líkið. 46En hann keypti línklæði, tók hann ofan, sveipaði hann línklæðinu og lagði í gröf, höggna í klett, og velti steini fyrir grafarmunnann. 47María Magdalena og María móðir Jóse sáu hvar hann var lagður.

Trúmál.is hvetur að sjálfsögðu alla til að taka frá tíma til þess að fara í kirkju í dag og eiga notalega stund með Guði hvort sem er þar eða heima hjá sér eða annarstaðar. Fyrir áhugasama bendum við á að hin guðspjöllin þrjú segja einnig frá atburðum Pálmasunnudags á eftirfarandi stöðum: Matt 27.1-61, Lúk 23.1-56 og Jóh 18.28-19.42. Auðvelt er að nýta sér vefsíðuna www.biblian.is til þess að fletta þessum stöðum upp í tölvunni.


Jesúmyndir á páskunum

6. apríl, 2009

Um allan heim minnast kristnir einstaklingar atburða þessarar viku sem nú er hafin. Margir fara yfir sögu Jesú krists á meðan hann var hérna á jörðinni m.a. með því að horfa á kvikmynd um líf hans og þá sérstaklega oft til þess að minnast þeirra atburða sem Páskarnir snúast um. Af þessu tilefni ætlar Trúmál.is sýna myndband sem sýnir brot úr einni af nýlegri svokölluðu “Jesúmynda” myndinni Passion of the Christ sem er án efa með umdeildari myndum en á sama tíma með þeim áhrifaríkari og sumir segja að hún sýni raunveruleikan, þó að sárt sé að horfa á köflum. Í bakgrunni má heyra lagið “Here I am (Majesty)” í flutningi Delirious. ATH. að atriði í myndbandinu eru ekki við hæfi viðkvæmra.

Trúmál.is hvetur alla til að taka endilega fram Biblíuna og/eða jafnvel að horfa á eins og eina Jesúmynd og taka tíma frá til þess að minnast atburðanna enn umfram allt að taka tíma frá til þess að kynnast Guði enn meir!


How great is our God – Hillsong

31. mars, 2009

´

Á www.hljomar.is má m.a. kynna sér DVD diska og CD diska með góðri kristilegri tónlist!


Kristnsfylgjendur vs. kristnir

19. febrúar, 2009

Enn og aftur fáum við smá heimsókn frá vinum okkar krists fylgjendandum og hinum kristna einstaklingi (fáum smá heimsókn frá kirkju plantara)

 

Hinar klippurnar má finna í fyrri innleggum hérna og hérna


Kristsfylgjendur vs. kristnir

10. febrúar, 2009

Hér eru fleiri myndbönd þar sem notaður er stíll Apple vs. PC auglýsingaherferðarinnar í tengslum við að vera fylgjandi kristi eða að vera kristinn.


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.