Í gömlu tímaritunum Rödd í óbyggð voru alls konar fréttir og greinar sem voru birtar. Hér er smá sýnishorn úr 23. árg. 1978. Þessi grein var tileinkuð heimatrúboði leikmanna sem stóð fyrir samkomum á sínum tíma og að ýmsu leiti frumkvöðlastarf á Íslandi. Greinin er birt í heild sinni hér að neðan.
Hinn 1. nóvember s.l voru liðin 50 ár frá því, að Ármann Eyjólfsson byrjaði að halda kristilegar samkomur á Njálsgötu 1 í Reykjavík, en þá er talið að starf það, sem síðar fékk nafnið “Heimatrúboð leikmanna” hafi byrjað.
Samkomur þessar vöktu þegar nokkra athygli og bar þar margt til. Það var í fyrsta lagi óvenjulegt að leikmenn, sem stóðu á kenningargrundvelli Þjóðkirkjunnar, hefðu opinberar vakningarsamkomur. Read the rest of this entry »
Trúmál.is skrifaði 