Trúmál.is vaknar til lífsins eftir sumarið

1. ágúst, 2011

Þá er verslunarmannahelginni brátt að ljúka og við á Trúmál.is erum smátt og smátt að vakna til lífsins. Í sumar hafa ófáir komið að undirbúningi næsta veturs hvað varðar ritun pistla ásamt því að senda inn hugmyndir um efnistök á þessari litlu síðu og þökkum við þeim öllum kærlega fyrir alla aðstoð. Pistlar munu birtast hægt og rólega á síðunni. Við ætlum líka að hafa umfjallanir um málefni líðandi stundar en margt hefur verið í umræðunni sem tengist trúmálum í landinu.

Guð blessi ykkur,
Ritstjórn


Sumargleði í sumarbúðum

10. júní, 2011

Nú er sumarbúðastarf margra sumarbúða komið á fullt en enn eru laus plás í ýmsum flokkum. Sumarbúðir eru frábær staður fyrir börn og unglinga að fara í til að eyða tíma með vinum í náttúrunni, fjölbreyttum íþróttum, á bátum, gönguferðum og mörgum fleiri spennandi dagskrártilboðum. Góð vináttubönd myndast oft á tíðum í sumarbúðum sem geta endst alla ævi.

KFUM og KFUK á Íslandi reka 5 sumarbúðir á landinu: Hólavatn, Kaldársel, Vatnaskóg, Vindáshlíð og Ölver. Einnig eru sumarbúðir við Ástjörn. Sumarbúðadvöl er góð og uppbyggjandi fyrir líkama, sál og anda og margir eiga dýrmætar minningar úr öllum þessara sumarbúða.

Nánari upplýsingar um sumarbúðirnar og skráningu í þær er að finna á heimasíðu KFUM og KFUK og á heimasíðu Ástjarnar.

 

Add to FaceBookAdd to Twitter

Like This!


Hvítasunnuhátíð í Hvítasunnukirkjunni

8. júní, 2011

Undanfarnar vikur hefur verið haldin afmælishátíð í Hvítasunnukirkunni Fíladelfíu í tilefni 75 ára afmæli kirkjunnar. Þar er búin að vera fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir alla aldurshópa og hefur dagskráin innihaldið skrúðgöngu, tónleika, söngleik fyrir börn með Salta söngbók og fjölmargar samkomur svo eitthvað sé nefnt.

Núna um Hvítasunnuhelgina verður lokaviðburður afmælishátíðarinnar og mun Dennis Greenidge koma og tala á þremur samkomum:

Föstudaginn 10. júní, kl. 20
Laugardaginn 11. júní, kl. 20
Sunnudaginn 12. júní, kl. 11.

Allir eru hjartanlega velkomnir á samkomurnar!

Add to FaceBookAdd to Twitter

Like This!


Ráfandi um eyðimörkina

30. maí, 2011

Annað hvort er einhver annar á ferðinni hér líka eða að við erum ekki lengur að fara yfir eyðimörkina … Við erum formlega á ráfi um hana!

Copyright Gospel Communications International, Inc –
www.reverendfun.com


Hver var fyrstur?

23. maí, 2011

Látið mig bara vita hvor var hérna fyrst og ég get þá byrjað pappírsvinnuna.

Copyright Gospel Communications International, Inc –
www.reverendfun.com


Kvartanir

16. maí, 2011

Líkar ekki predikunina mína?
Hringið í 1-800-Seg-Guði

Copyright Gospel Communications International, Inc –
www.reverendfun.com


75 ára afmæli Fíladelfíu

13. maí, 2011

Á þessu ári á Hvítasunnukirkjan Fíladelfía 75 ára afmæli. Okkur á Trúmál.is langar að því tilefni að benda áhugasömum á að dagana 26. maí til 13. júní verður sérstök dagskrá af þessu tilefni og koma eftirfarandi á framfæri:

Við hvetjum fólk til að taka frá helgina 27. til 29. maí og koma og fagna með okkur og njóta alls þess sem í boði er. Sem dæmi má nefna:

Fimmtudagur 26. maí kl. 20.00 Samhjálparsamkoma, farið verður yfir sögu Samhjálpar.

Föstudagur 27. maí kl. 20.00  Unglingadagskrá, litið yfir farinn veg í unglingastarfi safnaðarins.

Laugardagur 28. maí kl. 13.00-17.00 Útihátíð á Klambratúni. Margt spennandi í boði fyrir alla fjölskylduna.

kl. 17.00-18.30 Súpa og brauð í Fíladelfíu

kl. 19.00 Sálmasamkoma með 50′s þema.

Sunnudagur 29. maí   kl. 11.00 Hátíðarsamkoma. Kaffi og kaka eftir samkomu.

kl. 20.00 Tónleikar Gospelkórs Fíladelfíu.

Margt fleira verður í boði og um að gera að fylgjast með heimasíðunni þegar nær dregur til að sjá hvað verður í boði.

Við vonumst til að sjá sem flesta og bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin til okkar!

Hvítasunnukirkjan Fíladelfía


Royal rangers og hjólreiðarnar

11. maí, 2011

Við sögðum frá því á Trúmál.is fyrir skömmu að á Lindinni hefði verið sérstakur Royal rangers dagur. Okkur fannst þetta mjög áhugavert of ákváðum að fá upplýsingar um hvað hér átti sér stað og hvernig þessi dagur hefði nú gengið, hún Jóhanna Eldborg, foringi í Royal rangers Reykjavík sagði okkur eilítið frá því sem gerðist, neðst má svo finna upplýsingar um hvað Royal rangers starfið snýst um:

Við trúum því að þegar við blessum út frá okkur muni Drottinn blessa ríkulega til baka og nú tóku Royal rangers krakkarnir sig saman í því stóra verkefni að blessa Lindina sem segir öðrum börnum frá því að Jesús elskar þau á hverjum degi.

Þau hjóluðu 77 km vegalengd og söfnuðu áheitum.

Miðnesheiði – Hafnir – Grindavík – Reykjanesbraut (lögreglufylgd) – Hafnarfjörður.

Þau hjóluðu á milli tveggja bíla sem keyrðu með blikkandi ljósum, við höfðum kerrur fyrir hjólin þannig að þegar einhver þreyttist þá var hægt að taka hvíld og halda svo áfram. Allan tíman var bein útsending á Lindinni þar sem fylgst var með okkur og tekin viðtöl við krakkana og foringja, fólk var hvatt til að hringja inn áheit á krakkana og styðja við málefnið.

Krakkarnir stóðu sig sem hetjur við fengum stafalogn, rigningu og þegar leið á daginnn fór að slydda og svo snjóa, þá var orðið mjög kalt en þessar hetjur létu það ekki á sig fá fóru í þura vettlinga og kláruðu vegalengdina. Það er gaman að segja frá því að það var 15.ára strákur sem hjólaði alla 77 km. Þegar við söfnuðum saman öllum kílómetrunum sem hjólaðir voru þennan dag, því jú hver einstaklingur gerði sitt allra besta þá hjóluðuð krakkarnir samtals 786,2 km til styrktar Lindinni 30.april 2011.

Sunnudaginn 8.maí afhenti hópurinn fulltrúa Lindarinnar gjafabréf að upphæð 221.226 kr sem safnaðist  á Royal rangers deginum á Lindinni.

Allir krakkar á aldrinum 3.bekk og eldri eru velkomin í Royal rangers – það er bara að mæta, starfið er frítt. Heimasíðan okkar er rrr.is

Drottinn blessi ykkur.

Jóhanna Eldborg – foringi í Royal rangers Reykjavík.

Hvað er Royal rangers?

Royal rangers er kristilegt æskulýðsstarf Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi.

 Í Royal rangers hittast krakkar frá 3.bekk grunnskóla til og með 10.bekk. Þar lærum við mikið um útivist og alhliða skátastörf ásamt því að fá að vita meira um Jesú. Í Royal rangers er unnið að því  andlegur, líkamlegur og vitsmunarlegur þroski barna og unglinga aukist.

Krakkarnir hittast í hverjum miðvikudegi  á Royal rangers fundi í Fíladelfíu Kirkjunni kl.18 – 19. Þar lærum við skemtilega hluti td. Lærum við á áttavita, kortalestur, notkun/heiti vasahnífa, uppbyggingu á eldstæði, notkun elds og margt fleirra. Við förum reglulega á Royal rangers mót þar sem við notum alla þá þekkingu sem við höfum og hittum aðra Royal rangers krakka sem koma víðsvegar að frá landinu okkar.


Hár Móse

9. maí, 2011

Móses skiptir hárinu sínu

Copyright Gospel Communications International, Inc –
www.reverendfun.com


Ljúfir tónar

6. maí, 2011

Áhugasamur lesandi benti okkur í dag á meðfylgjandi myndband af laginu You are my all in all í flutningi Gaither Vocal Band. Lagið þekkja flestir og boðskapur textans er afar fallegur og minnir okkur á þann styrk sem Guð er okkur á lífsgöngunni.


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.