Um Trúmál.is

  1. Almennt
  2. Sagan á bakvið Trúmál.is
  3. Hugsjón og Markmið Raddar í óbyggð
  4. Hvernig getur þú aðstoðað okkur?
  5. Biblíutilvitnanir

Almennt

Trúmál.is er vefsíða um kristileg málefni líðandi stundar. Á síðunni eru tekin fyrir ýmis efni sem tengjast trúmálum og þá sérstaklega í tengslum við hina kristnu kirkju ásamt því að finna má ýmsar upplýsingar og tilkynningar um það sem er á dagskrá í kirkjum og söfnuðum landsins á síðunni.


Markmið þessarar síðu er að vera upplýsingaveita fyrir kristna einstaklinga og aðra sem eru áhugasamir um kristna trú á Íslandi. Hægt og rólega verður reynt að auka við úrval efnis, höfunda og greina á síðunni, en til þess þurfum við hugsanlega á þinni hjálp að halda. Ef að þú veist um eitthvað sem er að gerast í hinni kristinni kirkju, eitthvað sem tengist kristindómnum á Íslandi í dag sendu okkur þá upplýsingar um það á netfangið trumal@trumal.is. Eins ef þú hefur áhuga á að skrifa grein, pistil, koma með brandara, sögu, vitnisburð eða einhverjar ábendingar eða athugasemdir, hvetjum við þig til þess að hafa samband við okkur.

spirit_doveSagan á bakvið Trúmál.is

Forsagan á bakvið Trúmál.is má rekja til kristilega tímaritsins Raddar í óbyggð sem gefið var út á árunum 1953 – 1980 af Sigurði Guðmundssyni (1900-1989). Tímaritið var selt í áskrift inn á fjöldamörg heimili í landinu. Vel kann að vera að enn þann dag í dag megi á ýmsum heimilum rekast á eintak af Rödd í óbyggð. Árið 2006 ákváðu tveir bræður, langafa börn Sigurðar Guðmundssonar að stofna félag sem bæri sama nafn og tímarit langafa þeirra þ.e. Rödd í óbyggð og að þetta félag hefði það að markmiði að halda úti kristilegu tímariti eða kristilegri upplýsingaveitu á svipaðan hátt og Rödd í óbyggð gerði á sínum tíma. Niðurstaðan, með hliðsjón af breyttum tímum, varð vefritið Trúmál.is. Þessi vefútgáfa er þó, á sama hátt og tímaritið Rödd í óbyggð ætlað að verða frjálst evangelískt rit, óháð öllum flokkum og félögum, en byggir boðskap sinn á hinu eilífa opinberaða Orði Guðs í heilagri ritningu.

Þessvegna mun Trúmál.is birta áhugaverðar kristilegar greinar, orð úr Biblíunni, bænir, auglýsingar um það sem er að gerast í kristnum kirkjum og félagasamtökum og annað sem viðkemur trúmálum. Margar hugmyndir eru í loftinu um framtíð félagsins Raddar í óbyggð sem og framtíð vefsíðunnar Trúmál.is, má því eiga von á því að á komandi árum verði vefsíðan og starfsemi félagsins í stöðugri þróun. Vonum við að lesendur síðunnar njóti góðs af starfsemi félagsins vefsíðunnar og biðjum ykkur um að biðja fyrir þessu framtíð þessarar vefsíðu og þessa félags.

Með kærri kveðju,

Benjamín Ragnar Sveinbjörnsson,

Davíð Örn Sveinbjörnsson og

Fjóla Dögg Halldórsdóttir.

 

jesus20on20the20crossHugsjón og markmið Raddar í óbyggð 

Rödd í óbyggð trúir því að Guð hafi í Orði sínu gefið heiminum stefnu, sýn og markmið sem við, kristnir einstaklingar, eigum að ganga í átt að. Félagið hefur því ákveðið að starfa í samræmi við neðangreinda hugsjón sem það hefur ritað niður og byggt er á orði Hans.

aboutimageHugsjón Raddar í óbyggð

Rödd í óbyggð þráir að vera áhrifaríkt, lifandi og þjónandi félag leitt áfram af heilögum anda þar sem félagsmennirnir elska Guð og elska náunga sína á sama hátt og Jesús elskar.

Á þennan hátt vill Rödd í óbyggð leggja sitt að mörkum við að gera allar þjóðir að lærisveinum Jesú Krists, svo að öll verðum við eitt. 

Markmið og einkenni Raddar í óbyggð

CB025268

Útfrá ofangreindri hugsjón hefur Rödd í óbyggð sett niður eftirfarandi atriði sem félagið hefur sett að markmiði að einkenni sig.

Við þráum að vera áhrifaríkt félag sem er rödd sannleikans í þjóðfélaginu og hefur þannig þroskandi og fræðandi áhrif á samfélagið og nýtir á sama tíma alla möguleika til þess að boða fagnaðarerindið öllu mannkyni.

Við þráum að vera þjónandi félag þar sem að kristin trú og kærleikur birtist í verki gagnvart öllum þurfandi.

Við þráum að vera biðjandi félag sem treystir Guði fullkomlega, þar sem vænst er bænasvara og kraftaverka og þar sem að Guði er gefið alla lof og dýrð.

Við þráum að vera gefandi félag sem tekur á óeigingjarnan hátt fulla þátttöku í uppbyggingu Guðs ríkisins og þjóðfélagsins sem við störfum í með því að gefa tíma okkar, fjármuni og vinnu í Hans nafni.

Við þráum að vera félag í stöðugri uppbyggingu og endurnýjun sem miðlar upplýsingum og þekkingu til þeirra sem þrá sífellt nánara persónulegt samband við skapara sinn og frelsara.

compassusetargetmarkedVerkefni Raddar í óbyggð

Eitt af þeim verkefnum sem Rödd í óbyggð hefur tekið sér fyrir hendur í ofangreindum tilgangi er stofnun vefsíðunnar Trúmál.is. Markmið þess verkefnis er að skapa og halda úti kristilegri upplýsingaveitu sem er áhrifarík, skemmtileg og uppfræðandi og til þess fallin að skapa einingu meðal kristinna einstaklinga á Íslandi. Þá er það von og bæn okkar að vefsíðan Trúmál.is megi einnig þjóna inn líf þeirra sem ekki trúa á Jesú en nýta sér vefsíðuna.

 

Hvernig getur þú aðstoðað okkur?

Félagið Rödd í óbyggð er ekki rekið til hagnaðar og fer öll vinna á vegum félagsins fram í sjálfboðastarfi. Þrátt fyrir það fylgir ákveðinn kostnaður rekstri félagsins, en sá kostnaður er fyrst og fremst fólginn í rekstri vefsvæðisins og gjöldum til hýsingaraðila lénsins Trúmál.is og er þessum gjöldum haldið í algjöru lágmarki. Hafir þú áhuga á að styðja félagið, hvort sem það er með því að skrifa greinar, styðja félagið fjárhagslega, miðla vefsíðu- eða hönnunarkunnáttu eða styðja okkur með öðrum hætti benduð við þér á að hafa samband við okkur í gegnum trumal@trumal.is. Fyrst og fremst treystum við þó á því að þú hafir félagið og starfsemi þessí bænum þínum og segjir öðrum frá þessari síðu.

Það er stefna félagsins Raddar í óbyggð að hafa gegnsæi á öllum sviðum. Þessvegna birtum við hérna þann litla kostnað sem liggur á bakvið vefsvæðinu Trúmál.is en það hefur hingað til verið mætt með gjöfum.

Stofnkostnaður lénsins Trúmál.is = 12.450 kr

Árlegur rekstrarkostnaður Trúmál.is = 21.118 kr (7.918 kr árgjald til ISNIC, 1100 kr mánaðargjald vegna vistunar lénsins og 1 póstfangs)

 

Biblíutilvitnanir

Allar tilvitnanir úr Biblíunni sem birtar eru á síðunni, eru fengnar úr nýjustu þýðingu Biblíunnar útgefinni af Hinu íslenska Biblíufélagi 2007, nema annað sé tekið fram.

Ummæli eru ekki leyfð.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.