Mælum með

thumbs_upÞað er margt áhugavert og skemmtilegt í boði á Íslandi sem tengist kristinni trú og kirkju. Á þessari síðu munum við annað kastið vekja sérstaka athygli á hinu og þessu sem í boði er.

Trúmál.is mælir með:

Útvarpsstöðinni Lindinni FM 102.9 þessi útvarpsstöð hefur blessað líf ótal einstaklinga á Íslandi og það er ekki annað hægt en að mæla með því að stilla reglulega á FM 102.9, hlusta á uppörvandi kristilega tónlist, biðja og taka tíma frá fyrir Guð. Lindin er ekki bara útvarpsstöð heldur hefur Lindin gefið út frábært efni á íslensku á geisladiskum, mynddiskum sem og í rituðu máli. Þá hefur Lindin alla tíð lagt ríka áherslu á bænalífið og þannig stuðlað verulega að uppbyggingu kristindómsins á Íslandi.

Kristilega tímaritinu Bjarma sem hefur verið gefin út af Sambandi íslenskra kristniboða frá árinu 1907. Í Bjarma er fjallað um kristna trú og má þar finna margvíslegar greinar og viðtöl um allt sem við kemur kristninni. Blaðið kemur út 4 sinnum á ári og hægt er að kaupa það í áskrift þannig að maður missir ekki af einu einasta tölublaði. Á heimasíðu Bjarma má finna fjöldamörg tölublöð sem hægt er að skoða rafrænt.

Barna- og ungmennastarfi KFUM & KFUK. Félögin sem vart þarf að kynna fyrir Íslendingum hefur verið í fararbroddi fyrir uppbyggilegu kristilegu barnastarfi í meira en öld og býður upp á toppdagskrá fyrir börn og unglinga víðsvegar á landinu. Aðstandendur Trúmál.is þekkja það af eigin reynslu hvað starf KFUM & KFUK er skemmtilegt fyrir börnin en á sama tíma mikilvægt og blessandi. Hressir og skemmtilegir leiðtogar félaganna gera starfið að því sem það er og eru þessir einstaklingar mikilvægir stöplar í samfélaginu. Við hvetjum alla til þess að kynna sér þetta frábæra starf og kanna hvort að það sé ekki KFUM & KFUK deild í nágrenni við þig.

Tónlistarmiðstöðinni Hljómar sem sérhæfir sig í kristilegri tónlist. Hljómar hefur flutt inn og gefið út fjöldamarga kristilega geisladiska á Íslandi og verið í fararbroddi í þeim efnum. Hljómar eru m.a. með áhugaverða og góða netverslun sem gaman getur verið að kíkja á.

Ummæli eru ekki leyfð.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.